The post Ham – Endalok alls appeared first on Arnar Eggert.
]]>Það er til ljósmynd af listbræðrunum Óttari Proppé og Sigurjóni Kjartanssyni þar sem þeir standa við píanó ásamt Roli Mosimann, fyrrverandi meðlimi New York-neðanjarðarsveitarinnar Swans. Myndina tók Björg Sveinsdóttir árið 1992 fyrir Morgunblaðið. Roli leikur á píanóið, í senn íbygginn og glettinn, og er með sígarettu í munni. Óttarr og Sigurjón eru hins vegar að lifa sig inn í söng og í þannig stellingum að halda mætti að þeir væru að syngja sjómannavísur eða ættjarðarkvæði. Undirrituðum, sem var með þessa menn á stalli sem hálfguði, brá við, enda lífið einfalt hjá átján ára gamalli snobbaðri pönkrottu. Má þetta bara?
Eins slags þjóðlagatónlist
Þessi ljósmynd var eitt af því fyrsta sem kom upp í hugann þegar ég var að reyna að mynda mér skoðun á nýrri plötu Ham, Endalok alls, fyrstu hljóðversplötu hennar í níu ár (Söngvar um helvíti mannanna kom út 2017 og við reiknum ekki Chromo Sapiens: Tónlist fyrir Shoplifter (2020) inn í þessa formúlu). Af hverju varð mér hugsað til myndarinnar góðu? Jú, því að á þessari plötu er heilmikið um trall og „ræ-ræ-ræ“, lög sem sigla um mið eins slags þjóðlagatónlistar og alíslenskra alþýðusöngva. Einmitt. Haldið ykkur fast.
Platan hefst á laginu „Lygar“ og þar er af riffum nóg, „hefðbundinn“ Ham-massi sem neglir þig upp við vegg. „Ég er hann“ viðheldur þessu upp að vissu marki, melódískara þó og góður vitnisburður um lagasmíðanáðargáfu Sigurjóns Kjartanssonar. „Inni í höfði mér“ er hins vegar fullkomlega inni í þessum alþýðuramma sem ég lýsi hér að ofan. Kristjana Stefánsdóttir opnar það með glæsisöng áður en farið er í „hamferð“ þar sem Sigurjón syngur um hrossagauka og að sólin skíni í heiði. En inni í höfðinu deyi hann nú samt og Óttarr kemur inn með söng um að í eðli lífsins sé að reyna hvern mann. Ótrúlegt lag en þetta er engin u-beygja samt. Þessi þráður hefur alltaf verið í tónlist Ham, stóreflis niður aldanna sem kallar fram eitthvað fornt og mikilúðlegt. Hér er þetta einfaldlega tosað aðeins meira upp.
Nett brjálæðislegt
Steinunn Eldflaug syngur „la la la“ í „Stubbur“ en aftur er skipt í vel smurt rokk á „Hellisheiði“, vinkill Ham á „Born To Be Wild“ eiginlega. Tilraunir spretta hins vegar upp á „Rashomon“ hvar heyra má „eðlilega“ rödd Óttars og mér heyrist að flestir meðlimir Ham leggi þarna til rödd einnig. Og hér kemur kór, aftur er það „la la la“ en nú er eins og við séum í stílfærðum færeyskum hringdansi eða á skuggum bundnum miðnæturfundi einhverra aldinna höfðingja. Gotneskt, þungt, epískt, Ham-legt.
„Nótt finngálknsins“ býr yfir ískrandi nýbylgjugítar á meðan „Ég ann“ býður upp á blandaðan kór yfir skriðdrekariffum að hætti hússins. Titillagið er næstsíðast, ógurlegur andskoti, og ég heyrði það fyrst á tónleikum sveitarinnar í Reykholti í apríl síðastliðnum. Drungalegt lag sem olli hræðsluskoti í magann í kirkjunni en Óttarr beitir hálfgildings nornaöskri fyrir sig undir restina. En svo, til að undirstrika öll þau stíllegu bessaleyfi sem hér eru tekin, er endað á laginu „Lystigarðurinn“. Kerskið lag, eiginlega dálítið flippað þar sem endað er með nett brjálæðislegu, já það er rétt hjá þér, tralli. Orgelleikur Úlfs Eldjárns kemur hér sterkur inn en sannkölluð valmenni lögðu gjörva hönd á plóg við plötugerðina en það var nafni minn Guðjónsson sem stýrði upptökum sem fram fóru í Sýrlandi og Langholtskirkju í sumar.
Reynsla sem innsæi
Ham sneri aftur 2011 með plötunni Svik, harmur og dauði, hvar haldið var í einkennandi hljóm um leið og snúið var upp á hann. Verkið níðþungt alveg, ég sekk bara niður í sætið þegar ég hugsa um það. Á Söngvar um helvíti mannanna losuðu menn um og draumur Ham um að vera nýbylgjuhljómsveit fékk m.a. vængi (og tralli skotið inn í „Morðingjar“). Endalok alls er verk sveitar sem þrátt fyrir gríðarlega sterk höfundareinkenni alla tíð neitar að láta tjóðra sig við eitthvað eitt. Ham er alltaf eins, aldrei eins. Reynsla og innsæi þeirra eldri, hinna spöku, tryggir líka ákveðið afdráttarleysi varðandi það að gera nákvæmlega það sem mönnum hugkvæmist. Að leika sér með formið, þenja mörkin, vinna áfram með það sem sveitin á nú þegar. Og útkoman er ákveðin mýkt (já!), visst zen, kímnigáfa í stórum stíl, einkar heilbrigð forvitni (hvar við græðum) og að sjálfsögðu endalaust af hreinu og tæru rokki og róli. Ég bið ekki um meira frá bestu hljómsveit í heimi.
Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 17. október.
The post Ham – Endalok alls appeared first on Arnar Eggert.
]]>The post Nergal og Misþyrming appeared first on Arnar Eggert.
]]>Fyrirsögnin er ekki alveg rétt, gálgareið þýðir í raun að eitthvað sé háskalegt, feli í sér glæfralega hegðun eða að um óheillaþróun sé að ræða. Eitthvað stefni í algert óefni, glötun eða tortímingu. Þessi orð eru reyndar góð og gegn til að lýsa þeim ofsa sem felst í tónlistinni sem ég er að fara að tala um en verkefnið sem slíkt, það stendur jafn langt frá óheillaþróun og hugsast getur. En meira um þetta síðar! Ég varð bara að nota þetta orð, það er svo svalt.
Svartmálmssenan íslenska hefur lengi verið við einkar góðan kost, mikið af hljómsveitum og útgáfum og tónleikum og við stöndum frændum okkar á Norðurlöndum í svipuðum efnum fullkomlega á sporði. Við mælum þetta ekki í fjölda eðlilega en gamla góða höfðatalan er ágætis reikningsdæmi í þessu tilfelli. Í einhverjum tilfellum hafa Íslendingar svo náð eyrum útlendinga og gott dæmi um það er það merka samstarf sem ég ætla að ræða hér, hvar Misþyrming, Bítlar þeirrar hörðu senu sem fór í gang um 2015 með útkomu plötunnar Söngvar elds og óreiðu, og hin pólska Behemoth, þá leiðtogi hennar Nergal, skriðu saman undir eina, kolmyrkvaða sæng og ákváðu að slá í ákveðið afmælisdæmi sem hér verður lýst.
Öfgarokk
Verkefnið kallast Sventevith og er til komið vegna 30 ára afmælis frumburðar Behemoth en plata hennar, Sventevith (Storming Near the Baltic), kom út 1995 og vakti mikla eftirtekt. Verkið var flutt á hinum ýmsum þungarokkshátíðum nú í sumar og vakti verðskuldaða athygli, nema hvað. Behemoth er stærsta pólska öfgarokkssveit samtímans og einstök útfærsla hennar á svartmálmi hefur náð rokkþyrstum eyrum um heim allan. Sveitin á að baki gifturíkan feril og er með fjölda platna á bakinu auk linnulítilla tónleikaferðalaga. Nergal, söngvari, gítarleikari og aðallagasmiður Behemoth, er eini meðlimur hennar sem hefur leikið með henni frá upphafi, eða allt síðan 1991, og er hann gríðarlega þekktur innan rokkheima, mikil fígúra og með svör við öllu.
Leiðandi afl
Misþyrming hefur þá undanfarin tólf ár verið leiðandi afl í íslensku öfgarokki. Áðurnefnd plata hennar, Söngvar elds og óreiðu, bar með sér mikil vatnaskil og sveitinni hefur vaxið ásmegin síðan, sem tónleikasveit – en hún hefur spilað víða um heim – og sem hljóðverssveit en plötur hennar þrjár til þessa hafa allar verið lofaðar í hástert, af innlendum sem erlendum gagnrýnendum. Í júní síðastliðnum var verkefnið Sventevith svo frumflutt á Sátunni í Stykkishólmi við mikinn fögnuð viðstaddra (meðfylgjandi myndir eru þaðan). Þar varð fólk vitni að fádæma fagmennsku og metnaði, öfugt við þá gálgareið sem ég talaði um í upphafi. Í framhaldi af Sátunni ferðuðust Sventevith-kumpánar á milli ýmissa stærstu þungarokkshátíða Evrópu, þ.m.t. Wacken í Þýskalandi, Beyond the Gates í Noregi, Brutal Assault í Tékklandi, Alcatraz í Belgíu og Rockstadt í Rúmeníu. Verkefnið var svo flutt í síðasta skipti á hátíðunum Summer Dying Loud í Póllandi og Prophecy Festival í Þýskalandi.
Þeir allra áhugasömustu ættu svo að fara á Youtube og slá inn: „Nergal and D.G. talk about Sventevith special shows“ en þar ræða Nergal og Dagur úr Misþyrmingu verkefnið (Dagur kemst meira að segja að!).

Ljósmyndir/Blastbeat Exposures
Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 24. október.
The post Nergal og Misþyrming appeared first on Arnar Eggert.
]]>The post Eivör Pálsdóttir appeared first on Arnar Eggert.
]]>Ég hef verið að skrifa um Eivöru Pálsdóttur í u.þ.b. kvartöld, kynntist henni upp úr aldamótunum þegar hún, kornung, var að breyta tónlistarlandslagi Færeyja með æskuvinum sínum úr heimabænum Götu. Ferillinn hefur verið langur og gifturíkur, ekki að undra, en ég hef sjaldan barið annað eins náttúrubarn í tónlist augum og eyrum. Tengsl hennar við Ísland eru þá rík og hún talar lýtalausa íslensku enda bjó hún hér um skeið. Tónlistarlega hefur ferðalag hennar verið athyglisvert, snert hefur verið á þjóðlagatónlist, djassi, poppi o.fl. og rennt inn í rokk og raftónlist um miðbikið. Undanfarin fimm ár eða svo, eiginlega lengur, hefur Eivör verið að taka föst skref og ákveðin inn í heim alþjóðlega poppbransans með þessum líka góða árangri. Tónleikaferðalög eru orðin tíð og umfangsmikil og fyrir tilstuðlan útgáfna eins og Season of Mist og Nuclear Blast hefur hún tekið sér stöðu sem skandinavísk rökkurdrottning, staða sem er undirstrikuð svo um munar á nýjustu plötunni, Tungl.
Blíðar kveðjur
Viðtal við Crannk, hvar „That Aussie Metal Guy“ spjallar við hana, segir dálítið um hvert hún er komin og dómar berast nú strítt frá þungarokksbiblíum eins og Kerrang! Ástralinn kemur með góðan punkt, segir að tónlist Eivarar í dag hljómi forn, niður aldanna einhvers konar, en um leið sé hún framsækin. Í viðtalinu lýsir Eivör síðasta verki, Enn, sem leitandi plötu, hún hafi teygt sig í hinar og þessar áttir en á Tungl sé hún að fara inn á við og um persónulegra verk sé að ræða. Platan er unnin, eins og svo mörg fyrri verk, með eiginmanninum, Tróndi Bogasyni, en hann útsetti m.a. strengi. Um spilamennsku sér m.a. hljómsveit hennar, þeir Mikael Blak, Per Højgaard og Mattias Kapnas. Eivör vildi ná dýnamíkinni á tónleikum eins vel og hægt væri, enda bandið orðið þéttara en næstu göng eyjaskeggja.
Gotaheimar
Eins og segir, plötur Eivarar hafa verið margs konar og hún hefur nýtt þau fjölskrúðugheit á síðustu plötum og að einhverju leyti er tónlist hennar í dag samsuða af öllu því sem hún hefur komið nálægt í gegnum tíðina. En hér er Eivör rökkurbundin – frekar en tröllabundin – út í gegn, talandi inn í þann heim sem hún hefur m.a. átt skjól hjá undanfarið, þennan sem kenndur er við bárujárn. Og þá erum við að tala um áferðarlega sem ímyndarlega, þetta er eins og þegar Kælan mikla leikur á þungarokkshátíðum, þó að þungarokk sé ekki að finna í tónlist þeirra, frekar en hjá Eivöru. „Og mánin græt“ opnar plötuna, stemningsríkt og söngur Eivarar kallar fram myndir, systralag norna sem hittast á miðnætti undir fullu tungli svo ég dragi eitthvað úr heilapússi mínu. Drungalegir hljóðgervlar keyra það áfram og í kring dansa dulúðugir hljómar. Þetta er líka æði kvikmyndalegt verður að segjast, geiri sem Eivör hefur nokkra reynslu af líka.
Ballaða
„Verjugarðar“ eða „varnargarðar“ (ok, nú kímdi Íslendingurinn), þriðja lagið viðheldur þessari stemningu, rétt eins og lagið á undan, „Drekafljóð“. Í „Hinumegin“ fáum við smá ballöðuslaka en lagið er samt kirfilega innan þess skapalóns sem hér er notað. Ég nefni líka „Fangað“, hvar Elínborg systir hennar kemur og syngur með. Styrkleiki plötunnar felst fyrst og síðast í því hversu heilsteypt hún er, einkennishljómi er listavel haldið út í gegn og segja má að platan hljómi eins og umslagið og kynningarljósmyndirnar. Þetta er vakurt bæði og feitt svo ég beiti færeyskunni fyrir mig.
Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, fimmtudaginn 22. október.
The post Eivör Pálsdóttir appeared first on Arnar Eggert.
]]>The post Howie B appeared first on Arnar Eggert.
]]>Howie B fæddist í Skotlandi árið 1963 og er einn áhrifamesti tónlistarmaður allra tíma á sviði raftónlistar. Á níunda áratugnum var hann í hringiðu Bristol-senunnar sem gat af sér tripp-hoppið og á þeim tíunda var hann orðinn eins slags töfralæknir hinna frægu, kom að verkum heimsfrægra tónlistarmanna og lagði til tæknikunnáttu sem góðan anda samfara lausnum á því sem leysa þurfti. Nú á föstudaginn treður hann upp í Gamla bíói ásamt Hiraki Sawa sem 3 Sticks en Tech x Copper (Leifur Björnsson og Sólrún Mjöll Kjartansdóttir) sjá um að hefja kvöldið. Howie á í ríkum tengslum við Ísland, vinnur t.a.m. mikið með tónskáldinu Borgari Magnasyni, en hann mun koma fram með þeim félögum á föstudaginn.
Japönsk heimspeki
Ljúfur, kurteis og fyndinn, það var gott að ræða við Howie snemma morguns í gegnum Zoom. Hann var staddur í Napólí vegna frumsýningar á mynd sem hann kemur að („ég nota öll tækifæri til að komast til Ítalíu!“) og hann tók vel í það er ég kynnti mig sem sam-Skota en ég bjó í Edinborg árin 2012-2015. Fyrstu mínúturnar fara því í að tala um það góða land, muninn á borgunum tveimur o.s.frv. Við erum sammála um að rafmagnið í Glasgow sé tilfinnanlegt um leið og maður stígur úr lestinni á aðalbrautarstöðinni. Howie útskýrir síðan 3 Sticks-verkefnið fyrir mér: „Við byggjum þetta á heimspeki D.T. Suzukis. Við Hiraki uppgötvuðum, eiginlega óvart, að við hefðum báðir mikinn áhuga á Suzuki og fórum að ræða það hvernig við gætum sett hans hugmyndir í tónlistarform. Þannig að Hiraki „fæðir“ mig með myndefni og ég kem til baka með tónlistina. Og eins slags spírall eða svelgur fer af stað.“
Bono hringdi
Með svona mann á línunni er ekki annað hægt en að spyrja hann aðeins út í litríkan feril. Og ekki stendur á svörum. „Ég byrjaði bókstaflega á botninum, sem testrákur í hljóðveri Hans Zimmers í London árið 1984. Ég vann mig upp þar, allt þar til Zimmer flutti til Los Angeles. Og hann tók mig ekki með sér (hlær)! Í kjölfarið fór ég að vinna með Soul II Soul og Siouxsie and the Banshees og sú vinna kom mér á kortið, getum við sagt. Það var ekki slæmt heldur að Zimmer átti allar hljóðgræjur og -vélar sem fundnar hafa verið upp!“
Howie segir mér að það sé giska algengt að tónlistarfólk leiti til hans og ætlist til þess að hann ýti á töfrahnapp sem muni koma því á fýsilegar slóðir. „En það er enginn slíkur hnappur til,“ segir hann óðamála. „Tónlistarfólkið sjálft er hnapparnir. Tökum dæmi. Bono hringir í mig einn daginn og spyr hvort Ry Cooder megi hringja í mig [innsk. blaðamanns: Þetta er ein svakalegasta setning sem ég hef heyrt!]. Cooder var þá fastur með tónlistina við The End Of Violence og það er flogið með mig út til Los Angeles. Hann sækir mig á flugvöllinn á amerískum kagga og ég þarf að klípa mig aðeins (hlær).“
Hljóðmottur fyrir Cooder
Howie heldur áfram með Cooder-söguna. „Tónlistin var mjög flöt. Ég bið um tvo daga til að skoða málið og bý til hljóðmottur fyrir hann til að spila ofan á. Þegar hann kemur í hljóðverið heldur hann að það sé eitthvað að græjunum. Ég útskýri málið fyrir honum, hann kinkar kolli, fer inn í hljóðverið og spinnur sitt ofan á í einni töku. Ég var orðlaus.“ Howie upptökustýrði síðan ári síðar plötu Robbies Robertsons, Contact From The Underworld Of Redboy (1998) eftir að Robertson hafði sent honum lagahugmyndir á kassettu. Reyndar allt lög með öðrum rifjar Howie upp, enn gáttaður, en punktur Robbies var eðlilega sá að lýsa því fyrir Howie hvert hann langaði til að fara með tónlistina.
Djassmaðurinn
Howie vinnur enn náið með U2 og hann lýsir samstarfinu skemmtilega. „Þeir leita til mín þegar þeir þurfa aðstoð við sértæk verkefni sem liggja vanalega úti á jaðri,“ segir hann og lýsir því með handahreyfingum. „Þeir kalla mig djassmanninn. „Hringjum í djassmanninn.“ A.m.k. kalla þeir mig ekki poppmanninn, enda yrði ég að litlu gagni í þeim fræðum …“
Miða á viðburðinn má nálgast á tix.is.
Björk – Post (1995)
Vann að upptökum og lagði til forritun. Hann er skráður meðhöfundur að „Miss You“. Hann kom einnig að Homogenic (1997) og fingraför hans eru áberandi á „All Is Full Of Love“.
U2 – Pop (1997)
Hjálpaði til við ýmis upptökustörf en gegndi líka hlutverki „væb“-manns sem kynnti strauma og stefnur í danstónlist fyrir meðlimum, m.a. með því að fara með þá á klúbba. Hann átti líka stóran þátt í plötu Passengers frá 1995, sem var hliðarverkefni U2 og Brians Enos.
Wim Wenders – The End Of Violence (1997)
Howie var ráðinn til að bæta þá hljóðmynd sem Ry Cooder var byrjaður á, eins og fram kemur í viðtalinu. Hann hefur annars verið giska öflugur í kvikmyndatónlistargeiranum og samið tónlist fyrir stuttmyndir og heimildarmyndir auk mynda í fullri lengd.
Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, miðvikudaginn 14. október.
The post Howie B appeared first on Arnar Eggert.
]]>The post Halldór Eldjárn í Tjarnarbíói appeared first on Arnar Eggert.
]]>Skemmtileg tónleikasýning í Tjarnarbíói í kvöld hjá Halldóri Eldjárn þar sem við fengum innsýn inn í afar kvikan og skapandi huga!
Fyrst af öllu, uppsetning sýningarinnar var til mikillar fyrirmyndar. Sviðsmyndin var eins og við værum í heimsókn hjá sérvitrum vísindamanni, smá Svals og Vals fílingur og ég ætla Halldóri að það hafi verið tilgangurinn enda talaði hann mikið um þráhyggjur, uppfinningamanninn í sér og linnulausa dagdrauma sem hugmyndahríðir. Lýsingin í sýningunni, tölvu- sem framtíðarleg, ýtti þá undir þetta, einkar glæsileg.
Þessi samsláttur tónleika og sýningar gekk svo þannig fyrir sig að Halldór lék ný lög eftir sig, á milli þess sem hann sagði frá og sýndi okkur hljóðfæri sem hann hafði smíðað, lítið pípuorgel og kliðhörpu. Á þetta lék hann og undir rest náði sýningin „Nýjustu tækni og vísindi“ hæðum er Halldór lét fólk skanna QR kóða á tjaldi, og streyma svo tónlistinni sem fékkst í gegnum viðhlítandi síðu í gegnum símana sína á meðan hann lék með/undir. Ótrúlegt alveg.
PS. Halldór sýndi og fágæta reisn undir pressu er tæknin stríddi honum nokkuð herfilega í tvö skipti. Kúlið stríddi honum ekki getum við sagt.
Að ósekju hefði sýningin mátt vera lengri, ég hefði viljað fá fleiri sögur, meiri tónlist og enn dýpri innsýn í það sem veltist um í þessum fjöruga og fjörgandi huga. En það hefði þá verið á kostnað þess sem kom eftir sjálfa sviðsupptroðsluna, því að fólki var boðið upp á svið í lokin þar sem það fékk að skoða græjugnægðina og nóg var af slíkum nördum í salnum (hæ bróðir besti!). Gjafmilt „múf“ verður að segjast.
Er eingöngu að hugsa upphátt minn kæri Halldór, takk innilega fyrir mig og fyrir alla muni, haltu áfram að skapa, vera og hugsa, dag sem dimma nátt!![]()
![]()
Dagsetning tónleika: 14/10/26
Ljósmyndir: Arnar Eggert Thoroddsen
The post Halldór Eldjárn í Tjarnarbíói appeared first on Arnar Eggert.
]]>The post Guðrið Hansdóttir í Iðnó appeared first on Arnar Eggert.
]]>Guðrið Hansdóttir er með allra bestu tónlistarmönnum Færeyja. Hún á að baki áratuga feril í tónlist, hefur gefið út sjö plötur þar sem gæðin eru góð og jöfn út í gegn. Hún er alvöru „auteur“ mætti segja, með ríkan, persónulegan stíl og ein „fantastískur sangskrivari“ eins og landar hennar myndu segja.
Hún hefur verið að túra Ísland að undanförnu og kom blessunarlega við í höfuðstaðnum. Tilefnið er ný plata, hin frábæra Sýrublað (þýðir Hundasúra komst ég að í kvöld, stórkostlegt!) og flutti hún plötuna í heild sinni ásamt helþéttu bandi, þeim Högna Lisberg (trommur), Vinjari Egilsnes Petersen (ljómborð) og Ólavi Gaard (gítar). Textar plöturnar eru eftir Beini Bergsson. Samspil alla var með miklum ágætum og Högni er ekki eðlilega flottur trommari!
Guðrið hefur alltaf búið að sterkri stjörnuáru, hún er ein af þeim sem maður grætur yfir að sé ekki heimsfræg, túrandi með Aldous Harding eða hvað það gæti verið. Á sviði er hún sjarmerandi, með svala, nett fjarlæga verund, yfir henni ljúft zen. Vissa þess sem veit hvað hún er að gera. Platan nýja er frábær eins og segir, Guðrið er fyrir það fyrsta með sterka, náttúrulega lagasmíðataug, söngvaskáld fram í fingurgóma, og á þessari plötu eru smíðarnar klæddar í 8. áratugs klæði oft, einnig eru sett á þau þjóðlagahattar, flautur og brúnt flauel og einslags kántrírokk er þarna líka.
Eftir að plötu lauk var hent í nokkra smelli, fyrsta lagið var eins og það hefði komið út 1981 og það er e-r Stevie Nicks og (setjið inn dívu eftir smekk) andi yfir þessu öllu saman. Endað var á „Morgun í mars“, eitt af hennar þekktari og fallegri lögum.
Vakur tónleikur var þetta. Takk fyrir mig elsku Guðrið, haltu áfram að skapa!
Dagsetning tónleika: 25/10/26
Ljósmyndir: Arnar Eggert Thoroddsen
The post Guðrið Hansdóttir í Iðnó appeared first on Arnar Eggert.
]]>The post Howie B í Gamla bíó appeared first on Arnar Eggert.
]]>Goðsögnin Howie B lék listir sínar í Gamla bíó í gær ásamt fríðu föruneyti og ljúf var stundin. Aldurinn veldur því að ég verð ávallt ofsafeginn þegar ég spotta sæti á viðburðum, reyni þó að fara leynt með, en það misheppnast alla jafna. Uppsetning var til sóma að þessu leytinu til í gær, stór hringborð og stólar og ég og nokkrir vinir úr bransanum náðum góðri spjalllotu fyrir tónleika þar sem við töluðum fyrst og síðast um Lars Von Trier af öllum mönnum!
Það var dúettinn tech x copper sem fór fyrst á svið, samstarfsverkefni raftónlistarmannsins og upptökustjórans Leifs Björnssonar og slagverksleikarans og tónskáldsins Sólrúnar Mjallar Kjartansdóttur. Ofsa flott verð ég að segja, Sólrún er með jafnbestu trymblum okkar, með magnað töts á settinu og kaflar minntu mig á blómaskeið Tortoise. Leifur var ekki minni maður á tölvunum og lögin svöl, áköf og þokkalega dökk. Hér er vel hægt að vinna dáðir og efni er komið út, m.a. á forláta 7″ („Flughermir“)
Tékkið á síðu þeirra hér: https://www.facebook.com/techxcopper
Howie B, Hiraki Sawa og Borgar Magnason léku svo verkið 3 Sticks, verk sem gengur út spuna þar sem listamennirnir þrír leika inn á hvern annan í flæði. Borgar og B hafa starfað saman um áratugabil, Hiraki er nýrri, og saman vörpuðu þeir upp og fram miklu tón- og sjónarspili. Þeir höfðu útskýrt aðferðafræðina í hádegisfyrirlestri í LHÍ fyrr um daginn og segja má að stóri útgangspunkturinn í verkinu sé upplausn egósins, að ná fram þannig flæði að þeir týnist í framvindunni og eftir verði eitt verk þar sem ekki er sérstaklega hægt að mæla framlag einstaklinganna.
Þetta tókst mjög vel í gær, B fór í grúvkennda hörku mætti segja og gaman að heyra hann segja í hádeginu að fyrst væri grúvið, svo melódían. Skuggum bundnir skruðningar ultu áfram á transbundinn hátt eiginlega, þetta var þægilegt þess til að gera, vel hægt að lygna aftur augum og týna sér í tónlistinni – rétt eins og þeir sem voru að skapa hana. Við sem upplifðum meistarann í rauntíma, í gamla (góða?) næntís fengum okkar og vel það. Fyrir mig persónulega var líka dásamlegt að fá tækifæri til að ræða við Howie B og komast lengra inn í hans pælingar og sögu, sjá hér: https://arnareggert.is/vidtal-howie-b/
Takk fyrir mig!
Dagsetning tónleika: 16/10/26
Ljósmyndir: Arnar Eggert Thoroddsen
The post Howie B í Gamla bíó appeared first on Arnar Eggert.
]]>The post Breiðbandið í Geimsteini appeared first on Arnar Eggert.
]]>Rúnar frændi minn úr Keflavík stofnaði Breiðbandið ásamt vinum sínum snemma á þessu árþúsundi og upphófst mikið ævintýri í kjölfarið. Formleg störf hófust 2003, tríóið setti saman einföld þriggja gripa lög við einkar grínaktuga texta og á tónleikum hélt frændi uppi fjöri á milli laga með einslags uppistandi, gestum til mikillrar gleði og hlátraskalla.
Þetta var formúla sem klikkaði engan veginn og fyrstu árin tróð tríóið upp á árshátíðum og skemmtikvöldum eins og enginn væri morgundagurinn. Rúnar og vinir voru hvumsa yfir þessum óvæntu vinsældum en hömruðu járnið af alefli og á meðan nýrokksveitir Keflavíkur börðust í bökkum mokuðu Breiðbandsliðar út diskum sem urðu alls þrír (Af fullum þunga, 2004, Léttir á sér 2006 og Bætir á sig, 2010, allir gefnir út af Geimsteini).
Í gær tróð sveitin upp í Rokkheimum, heimili Geimsteins, vegna 50 ára afmælishátíðar útgáfunnar. Tónleikarýmið var sneisafullt, Keflvíkingar uppi um alla veggi en pláss líka fyrir fulltrúa úr frændgarði Rúnars í Reykjavíkinni.
Rúnar frændi er mikill sjarmör. Fyndinn, hlýr og fyllir rækilega upp í þau herbergi sem hann mætir í (setjið inn Breiðbandsskrítlu eftir smekk). Og hann vefur áhorfendum um fingur sér og það léttilega, fæddur sviðsmaður. Þannig rúlluðu tónleikarnir í gær, þekkt lög af ferlinum, sögur í kringum þau og af ferlinum almennt. Rúnar er mesti Keflvíkingur sem ég þekki og skot á Njarðvík og ástarsöngvar um Hafnargötuna runnu ljúflega niður.
Áhrifaríkast í gær var samt að sjá og finna fyrir vináttu meðlimanna. Svo góð og djúp að hana er hægt að snerta nánast. Og óspart notuð sem partur af framfærslu sveitarinnar, sjálfsháð og falleg skot þeirra á milli, allt saman dásamlegt. Gestir vöfðust inn í þetta allt saman eins og segir, heimamenn nutu sín í botn og aðkomumenn einnig. Alvöru samvera og samkennd, ró og innlifun, gleði og næring.
Hlakka til næstu tónleika. Meðlimir eru eitthvað að tauta um lokatónleika en ég minni á að Rolling Stones héldu sína fyrstu kveðjutónleika árið 1969!
Fullt af upplýsingum hér!:
https://is.wikipedia.org/wiki/Brei%C3%B0bandi%C3%B0
Dagsetning tónleika: 9/10/26
Ljósmyndir: Arnar Eggert Thoroddsen

The post Breiðbandið í Geimsteini appeared first on Arnar Eggert.
]]>The post lúpína – Light in the Dark appeared first on Arnar Eggert.
]]>Nína Solveig Andersen, sem gengur undir listamannsnafninu lúpína, hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarin ár fyrir markaþenjandi tónlist sína. Hún liggur á mörkum aðgengilegheita og „erfiðari“ svæða getum við sagt og hopp Nínu þar á milli er afskaplega vel lánað. Ég er svo heppinn að hafa fengið svigrúm til að rýna í allar plötur hennar til þessa og um fyrstu plötu hennar, Ringluð (2023), sagði ég m.a.: „Platan er frumburður Nínu og hann ber einkenni þess, óneitanlega, á köflum. Það er ekki allt komið, stundum finnur maður fyrir hiki og fínpússningarskorti en þetta er á sama tíma afar efnilegt verð ég að segja. Svo margar flottar íslenskar tónlistarkonur á fullu stími um þessar mundir og ég vona innilega að Nína/Lúpína haldi sínu striki.“
Af alúð
Striki því var síðan haldið með glans á næsta verki, Marglytta: „Marglytta er fyllra, bústnara og lengra komið verk og heyra má í ungri tónlistarkonu sem er að sinna listinni af alúð, hefla sitt út og vinna með það áfram,“ sagði ég og bætti við: „Lúpína er á fullu stími. Það er bara þannig. Hef ekki fleiri orð um þá ánægjulegu þróun í bili.“ Dóma þessa má nálgast á RÚV og mbl.is og hér er einn til handa ykkur.
Að framansögðu er ekki undarlegt að maður hafi sperrst upp er fréttir af þriðju plötunni bárust. Um sex laga stuttskífu er að ræða, kallast hún Light in the Dark og er gefin út í samvinnu við Reykjavík Record Shop sem sá um vínylpressun verksins. Á plötunni syngur lúpína í fyrsta sinn á ensku en fyrri plötur eru á íslensku. Fjöldi fólks kemur að plötugerðinni ásamt Nínu, of mörg til að telja upp hér, en greinargóðar upplýsingar má finna á Instagram-síðu listakonunnar.
Guðmæður
Í fyrsta laginu, „Hoping“, er okkur varpað inn í áframhaldandi ferðalag lúpínu um tilraunapoppsheima og er það vel. Söngröddin er sem fyrr, unnin og breytt, hljómar eins og maður hafi rekist inn á útvarpsbylgjur frá fjarlægri plánetu (eða nálægri). Laurie Anderson er guðmóðirin hér, ásamt Björk, og þennan stíl, þessa aðferðafræði lúpínu, má og finna í tónlist samtímalistakvenna eins og SiGRÚNAR, Róshildar og hinnar nýmættu Unu Mistar (Kuðungur, tékkið á henni). „The Rain Goes Up“, lag tvö, byrjar harkalega og Nína leikur sér þar með ljós og skugga. Blíður handanheimssöngur berst yfir gróf, næsta miskunnarlaus tölvuhljóð og lagið stoppar, byrjar og höktir til skiptis.
Nína vinnur vel með hljóð og samspil þeirra. Kaflar eru mjúkir og harðir á víxl og það er erfitt oft að giska inn í það sem fram undan er. Óvæntar sveigjur og beygjur sem styðja svo vel við listsköpunina. Öllu er samt haldið á teinunum, formlega, en innan sæmilega venjulegra „popplaga“ lúpínu, þá er ég að tala um bygginguna, getur allt og ekkert gerst. Þriggja mínútna popplag hvar litríkur hljóðrússíbani brunar inn og út um eyrnastæðið þitt.
Tónsmíðagáfur
Í „Sjáumst“, sem er til skiptis á íslensku og ensku, fer hún með tónsmíðagáfur sínar í ballöðuáttina, áhrifaríkt og fallegt og svo lokar hún með „Fairytales Shouldn‘t End“, hvar veifað er nærgætni og næmni í bland við hávaða og hörku. Samtvinnunin sú unnin af miklu listfengi, eins og allt annað út þessa plötu. Megi þetta góða ævintýri aldrei enda.
Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 10. október.
The post lúpína – Light in the Dark appeared first on Arnar Eggert.
]]>The post Fréttaskýring: Miley appeared first on Arnar Eggert.
]]>Við fögnum eðlilega nýrri plötu frá Miley Cyrus, nú Miley, en Bass Persuades er hennar tíunda. Já, fögnuður var það því að platan fór beinustu leið í fyrsta sæti Billboard-listans en Miley hefur ekki átt slíkri listavelgengni að fagna síðan Bangerz kom út 2013. Auk þessa fór platan á topp tíu í hinum og þessum löndum og eftirspurn í garð Miley því vel merkjanleg. Hún upptökustýrir ásamt unnusta sínum, Maxx Morando, og verkið einkennist af klúbbavænu, stuðbundnu poppi í bland við ballöður af sama raftoga.
Skömmu eftir að síðasta verk kom út, Something Beautiful (2025), var Miley búin að raða þessari plötu upp. Boðanna var því ekki beðið og sagði hún í viðtali að hún einfaldlega nennti ekki lengur að taka þátt í þessari tveggja og þriggja ára bið á milli platna. Hún færði sig frá Columbia til Atlantic vegna plötunnar og lýsir henni sem ástarplötu, bæði hvað varðar unnustann og heilbrigða sjálfsást.
Áköf og kvik
Segja má að Miley sé að stíga til baka á þessari plötu. Allar plötur hennar hafa verið mismunandi, það er stigið fram, til baka og svo fram aftur og þannig var síðasta plata stór og epísk, eiginlega „kvikmyndaleg“ í nálgun sinni. Bass Persuades er kvikari, með „hendum í plötu“ brag, yfir henni viss ákefð sem er ekki að finna á marglaga nálguninni á Something Beautiful. Með henni hér eru m.a. Kid Harpoon, Michael Pollack, Griff Clawson, Gregory „Aldae“ Hein, Model/Actriz og Monsterz & Strangers og framvinda öll svöl og slök, mörg laganna einhvers konar ballöður þar sem ýjað er að sígildri sálartónlist svona m.a. Hraðari lögin eru grimm og köld eiginlega, jaðarskotin jafnvel, sjá t.d. endurhljóðblöndunina á titillaginu sem er laumað inn í restina sem aukalagi. Allt að verða brjálað, fyrri tíma Lady Gaga svífur yfir og keyrslan botnlaus.
Unglingafrægð
En er ég mögulega að klikka á almennri kynningu? Ég geng út frá því að allir viti hver það er sem fær að njóta penna míns þessa vikuna. Miley Cyrus, eða Destiny Hope Cyrus, er dóttir Tish Cyrus umboðskonu og Billy Ray Cyrus kántrílistamanns. Hún fæddist 1992 í Tennessee, lóðbeint inn í afþreyingarmenningarfjölskyldu og varð heimsfræg í gegnum Hannah Montana-þættina. Eins og lög gera ráð fyrir í þeim fræðunum kom að því að segja skilið við unglingafrægðina og stíga inn í veröld fullorðinna sem hún og gerði með Bangerz, þá tvítug, og vakti lagið „Wrecking Ball“ og meðfylgjandi myndband gríðarlega athygli. Henni hefur tekist að halda sér í sviðsljósinu síðan, með því að kútveltast stíllega reglubundið og halda okkur þar með á tánum.
Kamelljón
Þegar maður hugsar um Miley koma orð eins og töffaraskapur og seigla upp í hugann. Bangerz fól í sér áhættu, gagnrýnendur sem almenningur lögðust á okkar konu með illum tungum en hún lét slíkt sem vind um eyru þjóta eða alltént í þeim mæli sem slíkt er hægt. Á sama tíma sýndi hún kamelljónshegðun að hætti Bowies og hún hefur jafnhattað ólíka stíla, veri það rokk, hipp-hopp, sýrurokk, popp eður danstónlist. Söngkona er hún þá frábær, mikill orkubolti þar og hefur m.a. hlotið mikið lof fyrir ástríðufullar og einkar sannfærandi ábreiður af lögum annarra. Miley getur allt, farið með himinskautum en getur líka legið við jörð, sælleg og svöl, eins og blóm í sverði.
Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, fimmtudaginn 8. október.
The post Fréttaskýring: Miley appeared first on Arnar Eggert.
]]>