Advertise with Googlier.com Árdalur http://ardalur.is Lífið í Árdal Wed, 06 Sep 2023 14:06:21 +0000 en-US hourly 1 https://wordpress.org/?v=5.2.21 Opið fyrir pantanir á lambaskrokkum úr slátrun 2023 http://ardalur.is/opid-fyrir-pantanir-a-lambaskrokkum-ur-slatrun-2023/ Wed, 06 Sep 2023 13:59:38 +0000 http://ardalur.is/?p=1134 Kæru viðskiptavinir

Nú ætlum við að lífga þessa síðu við og reyna að setja inn fréttir allavega mánaðarlega.

Núna er haustvertíðin að byrja í sauðfjárbúskapnum og farið verður í fyrstu göngur núna komandi helgi 8-10. september. Seinni göngur verða svo strax helgina eftir og sláturdagurinn okkar verður 25. september. Við ætlum að halda áfram að bjóða uppá heila skrokka úr haustslátruninni til sölu. Það verður með sama sniði og áður en verðið hækkar uppí 1.800 kr/kg sökum hærri sláturkostnaðar. Hins vegar getið þið fengið skrokka á sama verði og í fyrra 1.500 kr/kg en þá eru allir hlutar heilir og bara læri og hryggur vaccumpakkað.

Það verður lítið magn í boði og því um að gera að vera fljót að panta. Þið getið pantað ykkar skrokk hér. Kjötið verður fullmeyrnað eins og áður, fyrstur kemur, fyrstur fær.

mbk

Salbjörg og Jónas

]]>
Smalahundur kominn á heimilið http://ardalur.is/smalahundur-kominn-a-heimilid/ Thu, 26 Nov 2015 08:57:24 +0000 http://ardalur.is/?p=904 Þessi 9 mánaða kall heitir Gosi og kom hann til reynslu í Árdal í lok september sem tilvonandi smalahundur. Hann er búinn að ná hjörtum nýju eigenda sinna og verður varanleg eign á bænum. Hann sýnir mjög mikinn áhuga á smölun, flotta smalatakta, er húsbóndahollur og kjarkaður! Hann var fenginn frá Maríusi á Hallgilsstöðum og er undan Mýlu frá Bjarnastöðum og Skorra frá Hallgilsstöðum. Við bíðum spennt eftir að komast á námskeið/einkatíma hjá Lísu vonandi fljótlega og er það aðallega til að kenna húsbændunum hvernig á að vinna með svona snillinga!

]]>
Allt fé sótt heim þann 27.september http://ardalur.is/allt-fe-sott-heim-thann-27-september/ Thu, 26 Nov 2015 08:30:17 +0000 http://ardalur.is/?p=901 Smalað var úr öllum úthögum þann 27.september. Björgvin gekk fyrir hönd Árdals í seinni göngum sem voru bæði langar og erfiðar göngur og réttað var í myrkri. En allir komust heilir heim en talið að ekki hafi smalast mjög vel. Á sunnudeginum fór Björgvin aftur af stað fyrir hönd Árdals í Meiðavallaskóginn á meðan heimilisfólk og fleiri fóru í úthagana norður í sandi og sóttu þar geldfé, hrúta og sjúkradeildina frá því um vorið. Það var heitt en gekk ákaflega vel með vösku liði.

Í Árdal var allt fé heimt um miðjan október (100% heimtur) ef við reiknum með að annað lambið hjá veturgamalli kind sem var að bera í firsta skipti hafi farist, því hún kom heim með 45 kg gimbur og gimbrin á móti er sú eina sem skilaði sér ekki af fjalli.

Lokaniðurstöður slátrunar voru 15,1 kg, gerð 8,4 og fita 6,4. Þannig það er vinna fyrir höndum að bæta þessar tölur!

]]>
Firsti hrúturinn keyptur frá Hafrafellstungu http://ardalur.is/firsti-hruturinn-keyptur-fra-hafrafellstungu/ Wed, 25 Nov 2015 21:19:30 +0000 http://ardalur.is/?p=895

Viðburðarríkur dagur á fjárbúinu Árdal þann 15.september, 79 lömbum var slátrað hjá Norðlenska og var meðalvigtin 15,5kg fita 6,5 og gerð 8,7. Þokkalegt miðað við sumar, En veturgamli hrúturinn sem var notaður kom mjög illa út miðað við að hafa fengið mjög góðar kindur! Einni hrúturinn sem var í gemlingunum. En ákveðið var strax þegar tekið var við búinu að við myndum bæta nýju blóði við hrútana. Svo fór sem horfði að frúinfór í sakleysi sínu í firstu lambaskoðunarferðina í haust og keypti sér hrút frá Hafrafellstungu undan Hlunk sem stigaðist með 86,5 stig.

Á hrútadaginn var einnig keyptur hrútur frá Sandfellshaga hjá Gunnari og Herrann á bænum keypti sér gimbur undan Hlunk í Hafrafellstungu. Í brúðkaupsgjöf fengum við einnig eina lærabombugimbur frá Bjarnastöðum, eina mórauða gimbur og eina flekkótta (31 í bak & 18 í læri) frá Hallgilsstöðum á Langanesi. Af Árdals gimbrunum voru einungis 17 settar á því það var sko vandað valið Árdalsbúið er því vel sett þetta haustið með ásetning!

]]>
Firstu göngur yfirstaðnar 12.-13.sept http://ardalur.is/firstu-gongur-yfirstadnar-12-13-sept/ Wed, 25 Nov 2015 19:26:33 +0000 http://ardalur.is/?p=884

Firsta gangna helginni er lokið og gekk mikið á á föstudeginum þar sem yfirmaður verklegra framkvæmda (Jónas) var fjarri góðu gamni. Hann slasaði sig í vinnuni og þurfti því að finna staðgengil í hvelli! En allt fór vel að lokum og gengu göngur mjög vel undir stjórn gangnaforingjans (Frúin í Árdal). Menn komu heim þreyttir og svangir eftir erfiðan dag í Garðsheiðinni miklu og þeim gefið kjötsúpa og bjór. Þeir fengu einnig frí það sem eftir lifði dags.

Á sunnudeginum voru menn svo reknir af slefblautum koddanum til að rétta og gekk það afskaplega vel með vösku liði, meira að segja tekið niður hvert einasta númer, því 80 lömbum verður slátrað strax á þriðjudaginn. Féið var rekið heim seinnipartinn á bílum hestum og gangandi.

Við hjónin í Árdal viljum þakka öllum þeim sem hjálpaðu okkur þessa helgi og fyrir samverustundina.

Kæran kveðjur.

]]>