Arnaldur Arnarson fæddist í Reykjavík árið 1959 og hóf gítarnám í Svíþjóð tíu ára að aldri. Hann lærði síðan í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar hjá Gunnari H. Jónssyni og lauk þar námi vorið 1977. Hann stundaði framhaldsnám í Englandi og á Spáni, þar sem helstu kennarar hans voru Gordon Crosskey, John Williams, George Hadjinikos og José Tomás. Með sigri í XXI alþjóðlegu "Fernando Sor" gítarkeppninni í Róm 1992 og einleikstónleikum á Listahátíð í Reykjavík sama ár skipaði Arnaldur sér á bekk með fremstu tónlistarmönnum Íslands. Hann hefur margoft komið fram á Íslandi og haldið tónleika í Evrópu, Ástralíu, Bandaríkjunum og Suðurameríku. Arnaldur hefur um árabil kennt gítarleik og verið aðstoðarskólastjóri við Luthier Tónlistar- og dansskólann í Barcelona en starfar nú reglulega á Íslandi við kennslu og tónleikahald. Hann hefur haldið námskeið í tónlistarflutningi víða um heim og setið í dómnefndum í alþjóðlegum tónlistarkeppnum.
Sóley Þrastardóttir stundaði þverflautunám hjá Jóni Guðmundssyni við Tónlistarskóla Austur-Héraðs á unglingsárunum og nam síðan flautuleik hjá Bernharði Wilkinson og Hallfríði Ólafsdóttur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lauk svo BMus gráðu í flautuleik frá Listaháskóla Íslands hjá Martial Nardeau. Þaðan lá leiðin til University of Oklahoma í Bandaríkjunum, þar sem hún nam hjá Valerie Watts og útskrifaðist með MMus og DMA gráður í flautuleik. Sóley hefur komið fram sem flautuleikari víða um heim en undanfarin ár hefur hún aðallega lagt áherslu á að vera virk í tónlistarlífinu á Austurlandi. Hún hefur m.a. leikið með Sinfóníuhljómsveit Austurlands, MELA listamannafélagi og flautukvartettinum Bjartsýni og komið fram á tónleikaröðinni Tónlistarstundum, tónleikaröð Bláu kirkjunnar og tónleikum á vegum Tónlistarmiðstöðvar Austurlands.
Þórunn Harðardóttir er fædd og uppalin í Hafnarfirði þaðan sem hún kláraði framhaldspróf í víóluleik 2005 með Guðmund Kristmundsson sem aðalkennara. Þaðan hélt hún til Birmingham í Englandi og lauk BMus prófi undir handleiðslu víóluleikarans Rivku Golani. Þegar Þórunn fluttist aftur heim fékk hún starf við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og starfar þar enn í dag við fiðlu- og víólukennslu, auk þess að stjórna strengjasveitum skólans. Þórunn hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum sem víóluleikari hér á landi í öllum geirum tónlistar, en hefur sérstakan áhuga á órafmagnaðri kammertónlist og/eða verkefnum þar sem víólan fær að njóta sín. Hún er fastur meðlimur strengjasveitarinnar Spiccato og spilar reglulega með Sinfóníuhljómsveit Austurlands og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands.
Ásdís Arnardóttir sellóleikari hefur búið og starfað á Norðurlandi frá árinu 2007. Hún kennir við Tónlistarskólann á Akureyri og Tónlistarskóla Eyjafjarðar og leikur með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hún hefur á þessum tíma verið virkur þátttakandi í tónlistarlífinu og komið fram á fjölmörgum viðburðum á svæðinu eins og Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju, Barokksmiðju Hólastiftis, Sumartónleikum á Hólum og Norðlenskar konur í tónlist svo eitthvað sé nefnt. Ásdís var Bæjarlistamaður Akureyrar árið 2020. Áður en Ásdís flutti norður starfaði hún við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Suzukitónlistarskólann í Reykjavík. Hún var með samning við Sinfóníuhljómsveit Íslands 2007-2010, spilaði með Íslensku Óperunni og tók þátt í ýmis konar samspili. Ásdís er með mastersgráðu í sellóleik frá Boston University.
The post appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>The post Viltu spila í Bláu kirkjunni? appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar næstkomandi.
//
Happy new year! Applications are open for the Blue Church's Summer Concert Series 2025. Our goal has always been to offer our concert guests a varied and high-quality music performance. In the summer of 2025, we plan to hold six concerts, on Wednesday evenings from the end of June until the beginning of August. Interested are encouraged to apply by sending an email to blaakirkjan@blaakirkjan.is The application must include a draft of the concert program, CV and an audio/video sample.
The application deadline is February 3rd.
The post Viltu spila í Bláu kirkjunni? appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>The post 1. ágúst – Minning Muff Worden heiðruð appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>Sumartónleikaröðin Bláa kirkjan á Seyðisfirði fagnar í ár tuttugu ára afmæli sínu. Af því tilefni verður sett saman hátíðardagskrá þar sem minningu annars stofnanda hennar, tónlistarkennarans bandaríska, Muff Worden, verður heiðruð. Muff var fyrstu árin aðaldriffjöður tónleikaraðarinnar en hún lést árið 2006, langt fyrir aldur fram.

Dagskráin verður blanda af óbundnu máli og tónlistarflutningi í umsjón leikkonunnar Halldóru Malinar Pétursdóttir. Tónlistina flytja m.a. þau Bergþór Pálsson, Diddú og Anna Guðný Guðmundsdóttir. Þau eru landsmönnum löngu kunn og hafa margoft komið fram í Bláu kirkjunni.
The post 1. ágúst – Minning Muff Worden heiðruð appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>The post 25. júlí: Eldjárnin og Pozzo appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>
Plata Aspar, Tales from a poplar tree, var tilnefnd í flokki þjóðlagatónlistar á íslensku tónlistarverðlaununum 2018. Örn hefur ljáð mörgum helstu söngvurum og tónlistarmönnum landsins einkennandi gítarleik sinn, sem má t.d heyra á plötu Snorra Helgasonar, sem hlaut verðlaun fyrir þjóðlagaplötu ársins á íslensku tónlistarverðlaununum í mars 2018.
Valeria Pozzo lærði fiðluleik í tónlistarháskólanum í Feneyjum. Árið 2011 fluttist hún til Lundúna til að hefja nám í söng í LCCM. Það var þá sem leiðir hennar og Aspar lágu saman. Árið 2013 kom út fyrsta smáskífa Valeriu, here I live and breathe, þar sem hún syngur og leikur á fiðlu og gítar. Hún stundar nú framhaldsnám við Goldsmiths háskólann og er að vinna að sinni fyrstu breiðskífu.
The post 25. júlí: Eldjárnin og Pozzo appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>The post 18. júlí: Magga Stína og félagar appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>
The post 18. júlí: Magga Stína og félagar appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>The post 11.júlí: Strengir, sögur og farandtónlist – Tourlou music appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>Á þeim tveimur árum sem liðin eru frá stofnun Tourlou hafa þremenningarnir farið í tónleikaferðalag um Spán og Japan, gefið út sinn fyrsta geisladisk og komið fram á hinum ýmsu tónleikum og tónlistarhátíðum í Hollandi og Belgíu.

Tónleikar Tourlou í Bláu kirkjunni eru þeir síðustu í röð tónleika eftir þriggja vikna ferðalag tríósins um Ísland.
Tríóið skipa þau Anna Vala Ólafsdóttir, selló og söngur, David Alameda Márquez, fiðla, víóla d’amore, mandólín og söngur og Mayumi Malotaux, fiðla, mandólín, söngur
The post 11.júlí: Strengir, sögur og farandtónlist – Tourlou music appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>The post 4. júlí: It’s a Womans World – Olga Vocal Ensemble appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>
Sönghópurinn Olga Vocal Ensemble hefur verið starfræktur síðan árið 2012 en hópurinn hélt sína fyrstu tónleika á Íslandi sumarið 2013 og hefur heimsótt Ísland á hverju ári síðan þá. Hópurinn er skipaður 5 strákum sem allir eru búsettir í Hollandi. í Olgu eru Hollendingarnar Jonathan Ploeg og Arjan Lienaerts, Englendingurinn Matthew Lawrence Smith, rússneski Bandaríkjamaðurinn Philip Barkhudarov og Íslendingurinn Pétur Oddbergur Heimisson.
#heforshe #itsawomansworld
The post 4. júlí: It’s a Womans World – Olga Vocal Ensemble appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>The post Glæsilegt tónleikasumar framundan á 20 ára starfsafmæli appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>
Olga Vocal Ensemble ríður á vaðið með tónleikana It’s a Womans World þann 4. júlí þar sem kvenkyns tónskáldum og flytjendum verður gert hátt undir höfði. Þann 11. júlí mun alþjóðlega þjóðlagatríóið Tourlou music flytja eigin útsetningar á þjóðlögum héðan og þaðan úr Evrópu og víðar. Þá stígur á stokk Magga Stína ásamt félögum þann 18. júlí og flytur frumsamda tónlist í bland við annarra. Síðustu tónleikarnir verða þann 25. júlí en þá koma svarfdælsku systkinin Ösp og Örn Eldjárn ásamt ítalska fiðluleikaranum Valeria Pozzo og flytja tónlist eftir sig.
Þann 1. ágúst verður flutt minningardagskrá um Muff þar sem tónlist í bland við önnur atriði verður flutt og sagt frá ævi Muff og störfum. Tónlistarmennirnir Bergþór Pálsson, Diddú og Anna Guðný Guðmundsdóttir sjá um tónlistarflutninginn.
Verið velkomin í Bláu kirkjuna.
The post Glæsilegt tónleikasumar framundan á 20 ára starfsafmæli appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>The post Að loknu tónleikasumri appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>Aðsókn minnkaði því miður nokkuð frá fyrra ári og má leiða að því líkum að það sé hægt að rekja það til hækkandi gengi krónunnar. Erlendir ferðamenn eru ætíð í meirihluta tónleikagesta og ljóst er að almennt eyddu þeir minna í afþreyingu á Íslandi en áður. Áheyrendafjöldi er þó ekki eini mælikvarðinn á mikilvægi tónleikaraðar sem þessarar og á næsta ári er fyrirhugað að halda upp á 20 ára afmæli hennar.
Við þökkum öllum sem lögðu tónleikaröðinni lið, sérstaklega Seyðisfjarðarkaupstað, Seyðisfjarðarkirkju, Uppbyggingarsjóð Austurlands, Síldarvinnslunni, Alcoa Fjarðaál og Tónlistarsjóði. Án þeirra stuðning væri ekki gerlegt að bjóða upp á eins metnaðarfulla og fjölbreytta dagskrá.
The post Að loknu tónleikasumri appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>The post Heimabrugguð austfirsk tónlist þann 9. ágúst appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>Tónleikar byrja kl. 20:30.
Miðasala við innganginn.
Aðgangseyrir: 3.000 kr.
Aðgangseyrir fyrir 67 ára og eldri, öryrkja og námsmenn: 2.500 kr.

The post Heimabrugguð austfirsk tónlist þann 9. ágúst appeared first on Sumartónleikaröð Bláu kirkjunar.
]]>