Advertise with Googlier.com Arkitektastofan OG http://arkitektastofan.is Tue, 29 Apr 2025 12:20:26 +0000 en-US hourly 1 http://arkitektastofan.is/wp-content/uploads/cropped-ArkitektastofanOG-vefmerki-32x32.jpg Arkitektastofan OG http://arkitektastofan.is 32 32 A-eki stóllinn í Nordiska Galleriet í Stokkhólmi http://arkitektastofan.is/?p=3656 Sun, 03 Dec 2017 21:52:19 +0000 http://arkitektastofan.is/?p=3656 Sýning í Vandalorum í Svíþóð http://arkitektastofan.is/?p=3592 Sat, 04 Jul 2015 08:04:24 +0000 http://arkitektastofan.is/?p=3592
Þann 4. júlí síðastliðinn hófst sýning í hönnunarsafninu Vandalorum í Värnamo í Svíþjóð á húsgögnum eftir Sigurð Gústafsson og verkum Arkitektastofunnar OG. Sýningin stendur til 11. nóvember nk. Þar getur að líta fjölbreytt úrval af húsgögnum eftir Sigurð Gústafsson sem spanna allan feril hans allt til dagsins í dag, en Sigurður hefur hlotið tvenn af helstu hönnunarverðlaunum norðurlanda, Bruno Mahtsson verðlaunin og Torsten og Wanja Söderberg verðlaunin. Af verkum Arkitektastofunnar sem eru á sýningunni má nefna Búðarhálsvirkjun sem tekin var í notkun á síðasta ári og Klettaskóla sem er nú í byggingu, Víkurskóla frá 2001, auk ýmissa samkeppnistillagna. Á sýningunni eru einnig verk eftir Bruno Mahtsson, þekktasta húsgagnahönnuð Svía, og Ditte Hammerström frá Danmörku. Vandalorum var opnað árið 2011 og hefur á skömmum tíma orðið eitt af helstu hönnunarsöfnum í Svíþjóð. Húsið er hannað af ítalska arkitektinum Renzo Piano, en innréttingar í það voru hannaðar af Arkitektastofunni OG.
]]>
Opnun tengivirkis að Búðarhálsi http://arkitektastofan.is/?p=3313 Fri, 10 Jan 2014 11:48:34 +0000 http://arkitektastofan.is/?p=3313 Í dag voru Búðarhálslína og tengivirkið að Búðarhálsi tekin í notkun við hátíðlega athöfn. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra og Þórður Guðmundsson forstjóri Landsnets fluttu ávörp og fram fór fróðleg kynning á uppbyggingu raforkuflutningskerfisins.

]]>
Hús Krabbameinsfélagsins http://arkitektastofan.is/?p=3101 Tue, 19 Nov 2013 23:16:42 +0000 http://arkitektastofan.is/wordpress/?p=3101 Auglýst hefur verið hjá Ríkiskaupum, útboð á utanhússviðgerðum á húsi Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð 8. Einangrun og klæðning á veggjum og þaki verður endurnýjuð og skipt um alla glugga. Gert er ráð fyrir að verkið hefjist upp úr áramótum en verklok eru 30. september 2014.  Sjá nánar: http://www.rikiskaup.is/utbod/utb/15565

]]>
Samþykkt í Borgarráði http://arkitektastofan.is/?p=3099 Thu, 07 Nov 2013 23:13:29 +0000 http://arkitektastofan.is/wordpress/?p=3099 Breyting á deiliskipulagi fyrir Klettaskóla, Suðurhlíð 9, hefur verið samþykkt í Borgarráði. Deiliskipulagið var upphaflega auglýst síðla árs 2012, en í millitíðinni voru gerðar verulegar breytingar til að koma til móts við óskir íbúa hverfisins. Athugasemdafrestur var til 13. september. Sjá nánar…

]]>
Siðanefnd AÍ úrskurðar http://arkitektastofan.is/?p=2965 Thu, 10 Oct 2013 16:57:44 +0000 http://arkitektastofan.is/wordpress/?p=2965 Siðanefnd Arkitektafélags Íslands hefur úrskurðað Arkitektastofunni OG í vil í máli stofunnar gegn Arkís arkitektum. Málið er til komið vegna aðkomu Arkís að breytingum á húsinu að Ofanleit 2, sem hannað var af Arkitektastofunni Og og hýsti Háskólann í Reykjavík. Niðurstaðan er sú að Arkís hafi brotið siðareglur félagsins, og telur siðanefnd brotið ámælisvert.  Sjá nánar…

]]>
Klettaskóli deiliskipulag http://arkitektastofan.is/?p=2861 Fri, 02 Aug 2013 09:22:38 +0000 http://arkitektastofan.is/wordpress/?p=2861 Breyting á deiliskipulagi fyrir Suðurhlíð 9, Klettaskóla, hefur verið auglýst. Deiliskipulagið var upphaflega auglýst síðla árs 2012, en í millitíðinni voru gerðar verulegar breytingar til að koma til móts við óskir íbúa hverfisins. Athugasemdafrestur er til 13. september. Sjá nánar…

]]>
Verðlaun í samkeppni um FSU http://arkitektastofan.is/?p=2713 Wed, 19 Jun 2013 11:55:52 +0000 http://arkitektastofan.is/wordpress/?p=2713 Arkitektastofan OG hlaut 3. verðlaun í opinni samkeppni um stækkun verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Suðurlands. Samkeppnin var haldin af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og sveitarfélögum á suðurlandi. 25 tillögur bárust í samkeppnina. Sjá nánar…

]]>
Stækkun Klettaskóla http://arkitektastofan.is/?p=243 Mon, 01 Apr 2013 13:36:19 +0000 http://arkitektastofan.is/wordpress/?p=243 Reykjavíkurborg hefur samið við Arkitektastofuna OG um hönnun viðbyggingar við Klettaskóla, sem áður hét Öskjuhlíðarskóli. Gert er ráð fyrir um 3000 m2 viðbyggingu, sem meðal annars hýsir íþróttahús og sundlaug.

]]>
Hornsteinn að Búðarhálsvirkjun http://arkitektastofan.is/?p=241 Fri, 26 Oct 2012 12:00:52 +0000 http://arkitektastofan.is/wordpress/?p=241 Forseti Íslands lagði í dag hornstein að stöðvarhúsi Búðarhálsvirkjunar.

]]>